Myndband af svæðinu – SMELLIÐ HÉR
Íbúð 506 er skráð 110,2 fm þar af geymsla 6,7 fm.
Sjá nánar upplýsingar á http://hofdatorg.is – MYNDBAND AF SVÆÐINU
Helstu atriði skilalýsingar.
Íbúðir eru afhentar fullbúnar án gólfefna en þó verða gólf baðherbergja flísalögð. Gólfhiti er í öllum íbúðum. Eldhús- og baðinnréttingar eru sérsmíðaðar frá franska framleiðandanum SCHMIDT en umboðsaðili er Parki á Dalvegi. Val um fjórar litasamsetningar í eldhúsi og baðherbergi. Fataskápar eru sérsmíðaðir og eru í svefnherbergjum, fataherbergjum og forstofu. Blöndunartæki frá Tengi. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara á baðherbergi. Baðherbergi eru flísalögð í hurðarhæð og sturtubotn. Innihurðir eru samlokuhurðir að vali arkitekta. Spanhelluborð, blástursofn og gufugleypir með kolasíu eru frá AEG. Rofar og tenglar eru hvítir og sjónvarps- og símatenglar í stofu og hjónaherbergi. Óbein lýsing er á svölum og rammalýsingar í svalaopum.
Íbúðir eru á hæðum 1-12 en einnig er verslunar- og þjónusturými á jarðhæð. Húsið er einangrað að utan og útveggir klæddir með álklæðningu. Gler svalalokun er í flestum íbúðum. Gluggar eru ál/trégluggar. Útihurðir anddyra eru úr áli og hafa rafmagnsopnun, lyklalaust aðgengi er á anddyrishurðir og úr bílageymslu að stigahúsi. Lóð er sameiginleg fyrir Höfðatorg, næst húsinu er lóðin hellulögð og snjóbræðsla við aðalinnganga. Sorpgeymsla fyrir heimilisúrgang er í djúpgámum fyrir vestan húsið.
Sameign innanhúss er fullfrágengin. Mynddyrasími er í húsinu. Gólf í anddyri og lyftu eru flísalögð. Gólf geymslna eru máluð. Reykskynjarar í sameign eru tengdir brunakerfi hússins.
Kaupendur geta fengið aðgang að bílastæðum í bílakjallara sem er á tveimur til þremur hæðum gegn gjaldi. Einnig eru nokkrir bílskúrar til sölu staðsettir í bílakjallara.
Glæsilegar nýtískulegar íbúðir í hjarta Reykjavíkur.
Allar nánari upplýsingar gefa eftirfarandi löggiltir fasteignasalar:
Jason Ólafsson í síma 775 1515 eða jassi@miklaborg.is
Svan Gunnar Guðlaugsson í síma 697 9300 eða svan@miklaborg.is
Ólafur Finnborgason í síma 822 2207 eða olafur@miklaborg.is
Jason Ólafsson í síma 775 1515 eða jassi@miklaborg.is
Skoða allar myndir