Íbúð 206: Glæsileg þriggja herbergja endaíbúð á 2. hæð skráð stærð 95,2 fm þar af geymsla 13,8 fm. Eigninni fylgir stæði í lokaðri bílageymslu. Íbúðin nær í gegnum húsið. Glæsilegt sjávarútsýni.
Nánari lýsing á frágangi: Fataskápar eru í forstofu og svefnherbergjum sem eru mjög rúmgóð. Vandaðar innréttingar eru í íbúðunum en þær eru frá HTH og blöndunartæki eru frá Grohe eða sambærileg. Innbyggð uppþvottavél og innbyggður ísskápur með frysti eru í eldhúsi íbúða. Hluti af eldhúsum eru með eyju og almennt er opið inn í rúmgóða og bjarta stofu þar sem er útgengt á svalir. Flestar íbúðirnar eru með sjávarsýn.
Íbúðirnar afhendast án gólfefna, nema á baðherbergi íbúða er flísalagt gólf og auk þess eru hluti af veggjum baðherbergis eru flísalagðir. Baðherbergi eru með upphituðu gólfi, handklæðaofni, upphengdu og innbyggðu salerni með hæglokandi setu ásamt flísalögðum sturtubotni og með sturtuhlið úr gleri.
Áætlað er að íbúðir að Hafnarbraut 9 verði afhentar á vormánuðum 2019. Sameign að utan og lóð verða afhent á sama tíma. Bílgeymsla verður afhent samhliða íbúðum.
Lokað bílageymsluhús er í kjallara og fylgir rafmagnstengill hverju stæði.
Kársnesbyggð ehf er lóðarhafi. Íslenskar Fasteignir fer með umsjón með byggingu hússins.
Hverfið: Mikil byggð sem er nú í uppbyggingu við sjávarsíðuna yst á Kársnesi í Kópavogi. Nálægð við sjávarsíðu og smábátahöfn gerir byggðina að einni eftirsóknarverðustu staðsetningu Kópavogsbæjar
Stefnt verður að því að ljúka uppbyggingu byggðarinnar á næstu fimm árum en hönnun er komin langt á veg fyrir flest svæði og er helmingur af uppbyggingarsvæðum kominn á framkvæmdarstig.
Ný borgarlína mun síðar styðja enn frekar við staðsetninguna til framtíðar og ný brú, sem lögð verður yfir til Nauthólfsvíkur, mun stytta leiðina verulega í miðborg Reykjavíkur.
ATH: Kaupandi greiðir skipulagsgjald þegar það verður innheimt við lokaúttekt (0,3% af endanlegu brunabótamati)
Arkitektar: Teiknistofan Tröð. Verkfræðihönnun: Strendingur Raflagnahönnun: Tera ehf. Lóðahönnun: Birkir Einarsson
Allar nánari upplýsingar gefa eftirfarandi löggiltir fasteignasalar:
Svan Gunnar Guðlaugsson í síma 697 9300 eða svan@miklaborg.is
Jórunn í síma 845 8958 eða jorunn@miklaborg.is
Ólafur Finnborgason í síma 822 2207 eða olafur@miklaborg.is