Fasteignamiðlun Vesturlands ehf kynnir
Brákarbraut 8. Vandaða þriggja herbergja endaíbúð 97,7 fm. á fyrstu hæð með sér inngangi í forsteyptu átta íbúða fjölbýlishúsi byggt árið 2007.
Íbúðin getur verið laus fljótlega.
Nánari lýsing
Anddyri er með flísum á gólfi og fatahengi.
Eldhús er með stórri og góðri innréttingu opið að hluta til með holi og stofu sem er björt og rúmgóð.
Baðherbergi er flísalagt með glugga, innréttingu, handklæðaofni og sturtu. Tengi er fyrir þvottavél í baðherberginu.
Svefnherbergi eignar eru tvö og eru þau bæði með góðum skápum. Útgengt í garð bakatil úr hjónaherbergi.
Geymsla er með sér inngang. Afar rúmgóð og býður upp á ýmsa möguleika m.a auka herbergi. Einnig er sameiginleg geymsla tveggja íbúða undir stigapalli upp á efri hæð.
Annað: Að utan er húsið með steinsalla áferð og að hluta klætt málm- og harðviðarklæðningu. Baklóð er með malbikuðum bílastæðum og að framanverðu er fallegt hellulagt útivistarsvæði. Góð og vinsæl staðsettning.
Allar upplýsingar í söluyfirlitinu eru fengnar hjá eiganda og úr opinberum gögnum.
Nánari upplýsingar veitir Stefán sími 896-9303. stefán@fastvest.is
Soffía Sóley Magnúsdóttir
Löggiltur fasteigna- og skipasali, löggiltur leigumiðlari
Sími 431-4144 GSM 846-4144 email. soffia@fastvest.is
Ragnheiður Rún Gísladóttir
Löggiltur fasteigna- og skipasali
sími 431-4144 GSM 861-4644 email fastvest@fastvest.is