Höfði fasteignasala kynnir:
BJÖRT OG FALLEG 74,6 FM ÚTSÝNISÍBÚÐ Á 2. HÆÐ MEÐ SÉRINNGANGI – 111 REYKJAVÍK.
Samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands er birt flatarmál eignarinnar 74,6 fm.
Um er að ræða bjarta og fallega 2ja herb.íbúð (mögul. á litlu aukaherbergi) á 2. hæð með sérinngangi frá svölu í steinsteyptu 3.hæða fjölbýlishúsi byggðu árið 1980.
Gengið er inn í forstofu en þar strax til hægri er lítið herb. (skráð geymsla íbúðarinnar). Inn af forstofunni er gangur er liggur inn að stofunni. Baðherbergi er til hægri og svefnherbergið til vinstri við innganginn. Eldhúsið er við hliðstofunnar til hægri. Útgengt er út á rúmgóðar austur svalir úr stofunni, en glæsilegt útsýni er til austurs úr íbúðinni. Sameiginleg vagn- og hjólageymsla er á jarðhæð.
Forstofa: Fatahengi og parket á gólfi.
Eldhús: Nýleg innrétting með góðu skápaplássi, rúmgóður borðkrókur, parket á gólfi.
Stofa: Björt og rúmgóð stofa með útgengi út á svalir, parket á gólfi.
Svefnherbergi: Rúmgott, parketlagt með miklu skápaplássi.
Baðherbergi/þvottur: Nýlegt, flísalagt og baðkar með sturtuaðstöðu, upphengt salerni og rými til hliðar fyrir þvottaaðstöðu.
Geymsla: Geymslan er innan íbúðar við inngang með glugga, gæti nýst sem lítið auka herbergi.
Í sameign á jarðhæð er sameiginleg vagn- og hjólageymsla, salerni og lítið rými skráð sem leikherbergi.
Um er að ræða einstaklega bjarta íbúð á góðum stað í efra Breiðholti með miklu útsýni.
Íbúðin hefur verið mikið endurnýjuð eins og eldhús og baðherbergi sem og gólfefni.
Búið er að samþykkja í húsfélagi framkvæmdir um að loka af svalirnar til austur með gleri.
Ljósleiðari er kominn inn í íbúðina.
STUTT ER Í LEIK- GRUNN- OG FRAMHALDSSKÓLA AUK ÞESS SEM EINSTAKLEGA STUTT ER Í ÍÞRÓTTASVÆÐI. ÍBÚÐIN ER EINNIG Í GÖNGUFÆRI OG NÁMUNDA VIÐ FRÁBÆRT VERSLUNAR- OG ÞJÓNUSTUSVÆÐI!
Allar nánari uppl. og skoðun veitir: Jóhann Friðgeir, lgf GSM: 896-3038 e-mail: johann@hofdi.is
Skoða allar myndir