Stuðlaberg Fasteignasala kynnir í einkasölu fallegt og snyrtilegt 118,5fm parhús ásamt innbyggðum 37,7fm bílskúr.
FORSTOFA er flísalögð og þar er góður skápur.
HOL er flísalagt og er það notað sem sjónvarpshol.
STOFA er flísalögð og hurð er út á afgirta verönd frá stofu
Í ELDHÚSI eru flísar á gólfi, þar er vegleg kirsuberja-innrétting og góð tæki, ofn og helluborð
ÞVOTTAHÚS er inn af eldhúsi með fullbúinni innréttingu og hurð út á plan. Innangengt frá þvottahúsi út í bílskúr
Á BAÐHERBERGI eru flísar bæði á gólfi og á veggjum, þar er falleg kirsuberjainnrétting, handklæðaofn, baðkar með sturtu og gluggi.
HERBERGIN eru öll parketlögð og eru skápar í þeim öllum. Stórir og veglegir skápar eru í hjónaherbergi.
BÍLSKÚR er fullbúinn, hiti, rafmagn og skolvaskur í borði. Búið er að útbúa tvö herbergi innst í skúrnum.
*Allar innréttingar, skápar og innihurðir eru úr kirsuberjavið
*Hiti er í öllum gólfum hússins.
*Bílskúrinn er fullbúinn og búið er að útbúa tvö herbergi í stórum hluta hans.
*Háaloft er yfir hluta skúrsins.
*Stór og góð afgirt verönd er á baklóð með heitum potti og góðum geymsluskúr
*Eignin er öll fullkláruð fyrir utan innkeyrslu en hún er tilbúin undir hellulögn eða steypu
Nánari upplýsingar um eignina veitir:
Halldór Magnússon lfs
S: 420-4000 / 863-4495
dori@studlaberg.is