Fasteignamiðstöðin Hlíðasmára 17, 201 Kópavogi sími: 550 3000 er með til sölu nýbýlið Stekkargrund landnúmer 202104 sem er á 29 hektara landspildu úr jörðinni Ormskoti Rangárþingi eystra, 861 Hvolsvelli.
Landið er gróið, grasgefið og gott beitarland. Frá landinu er einstök fjallasýn til Eyjafjalla og Eyjafjallajökuls og til suðurs sést til Vestmannaeyja. Lítið lögbýli sem bíður upp á ýmsa möguleika í fögru umhverfi. Landamerki eru afmörkuð með skurðum og girðingum. Landið liggur að Holtsósi. Á vetrartíma og við sérstakar aðstæður getur Holtsós flætt yfir neðri hluta landsins. Aðkoma að landinu sem um ræðir er um Hverfisveg nr. 245. Ekið er framhjá Holti og beygt til vinstri við Miðgrund þaðan er ekið framhjá bænum Miðgrund um veg sem leið liggur að landinu.
Tilvísunarnúmer: 10-2406
Nánari upplýsingar á skrifstofu Fasteignamiðstöðvarinnar sími: 550 3000
Sjá einnig: fasteignamidstodin.is / fasteignir.is /mbl.is/fasteignir/ fasteignamidstodin@fasteignamidstodin.is
Magnús Leópoldsson lögg. fasteignasali gsm: 892 6000 magnus@fasteignamidstodin.is
María Magnúsdóttir hdl og lögg. fasteignasali gsm: 899 5600 maria@fasteignamidstodin.is
Sjöfn Ólafsdóttir lögg. fasteignasali sími: 550 3000 sjofn@fasteignamidstodin.is