LINDIN FASTEIGNIR s. 893-1319 og Þórdís Pála Reynisdóttir thordis@lindinfasteignir.is kynna:
Hlíðargata 22 efri hæð, Neskaupstað. Sérhæð og helmingur tvöfalds bílskúrs.
4ra herbergja íbúð á efri hæð hússins ásamt helmingi tvöfalds bílskúrs.
Komið er inn í forstofu á neðri hæð. Lítil geymsla/lokað fatahengi er við hlið forstofunnar.
Gengið er upp ágætan, nokkuð breiðan stiga.
Á stigapalli er þvottahús/geymsla og gott rými með fatahengi.
Eldhúsið er rúmgott með upprunalegri innréttingu og upprunalegum flísum á gólfi. Pláss er fyrir uppþvottavél.
Stofan er rúmgóð með stórum gluggum og dyrum út á svalir í suður- og vesturátt.
Baðherbergið er nokkuð rúmgott, með innréttingu, baðkari og sturtubotni. Flísar eru á veggjum og gólfi.
Við svefnherbergjagang eru 3 svefnherbergi.
Mikið af innréttingum og gólfefnum í íbúðinni er upprunalegt.
Húsið lítur vel út að utan.
Húsið var málað 2017 og drenað 2018.
Húsið stendur hátt og mjög mikið og fallegt útsýni er úr íbúðinni.
Kostnaður kaupanda:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi – 0,8% af heildarfasteignamati en 0.4% fyrir fólk sem er að kaupa sína fyrstu fasteign. Lögaðilar greiða 1.6% af fasteignamati.
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi, umboði o.fl. 2.000 kr. af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar – almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu 48.980 kr. m.vsk.