LANDMARK FASTEIGNAMIÐLUN OG ÁSDÍS RÓSA LÖGFRÆÐINGUR OG LÖGGILTUR FASTEIGNASALI KYNNA: Nýlegt og fallegt tvílyft 203,6 fm raðhús í útjaðri byggðar við Þingvað 45. 4 svefnherbergi með möguleika á því 5. Eikarinnréttingar og góður garður.
Forstofa er rúmgóð með náttúruflísum og góðum skápum.
Gestasalerni er með náttúruflísum á gólfi.
Úr forstofu er gengið inn í fataherbergi/geymslu og þaðan inn í 26,2 fm bílskúr. Bílskúrinn er með máluðu gólfi og innst í honum er geymsla/herbergi með glugga og sérinngangi sem mögulegt er að nýta sem fimmta svefnherbergið.
Stofur eru opnar og rúmgóðar með eikarparketi á gólfi og stórum gluggum. Gengið er út í garðinn en raðhúsin eru byggð í hring og leikvöllur í miðjunni.
Eldhúsið er opið inn í stofuna. Innréttingin er úr eik með dökkum borðplötum. Náttúruflísar á gólfi.
Efri hæð:
Steyptur stigi milli hæða með kókosteppi.
4 svefnherbergi eru á efri hæðinni og eru þau öll með parketi og skápar í þremur þeirra. Úr einu herberginu er gengið út á u.þ.b. 30 fm svalir.
Baðherbergi er rúmgott með baðkeri og sturtu. Eikarinnréttingar og náttúruflísar á gólfi.
Þvottahús er með innréttingu og vask. Náttúruflísar á gólfi.
Af gangi er gengið út á aðrar svalir á efri hæðinni.
Húsið stendur á góðum og barnvænum stað rétt við helstu útivistarperlur borgarinnar. Engin hús eru á móti svo það eru næg bílastæði.
*** Allar nánari upplýsingar veitir Ásdís Rósa Ásgeirsdóttir, lögfræðingur og löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala. netfang: asdis@landmark.is eða í síma: 895-7784 ***
Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunar.
Fáðu frítt sölumat á eignina þína HÉRNA.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
- Stimpilgjald af kaupsamningi: 0.8% af fasteignamati eignar fyrir einstaklinga en 1.6% fyrir lögaðila, 0.4% ef um fyrstu íbúðarkaup er að ræða.
- Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.500 af hverju skjali.
- Umsýslugjald fasteignasölu kr. 69.900.- með vsk.
- Annar kostnaður t.d. skilyrt veðleyfi / skjalagerð kr: 15.000.- auk vsk.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill LANDMARK fasteignamiðlun því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og eftir atvikum leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Skoða allar myndir