STAKFELL S. 535-1000 KYNNIR TIL SÖLU: Nýtt og glæsilegt 57 herbergja nýinnréttað hótel. Vel staðsett steinsnar frá miðborginni. Hótelið er í traustri langtíma útleigu og heitir City Parkt hótel. Í öðrum áfanga er gert ráð fyrir að byggja tvær hæðir ofaná hótelið, ekki hefur verið sótt um þessa stækkun.
Um er að ræða endurbyggingu á traustu eldra húsi. Fastanúmer 235-5210, matshluti 010201. Húsið er steinsteypt og er upphaflega byggt árið 1959 skv. upplýsingum FMR.
Nánari lýsing:
Hótelið er mjög velstaðsett, allt nýinnréttað og endurnýjað á smekklegann hátt bæði utan sem innan.Stutt er að ganga í miðbæinn. Auk þess er í næsta nágrenni fjöldi veitingahúsa og önnur þjónusta.
Hótelið sem er á fjórum hæðum skiptist þannig, að á fyrstu hæð hótelsins er móttaka, morgunverðarsalur, setustofa og gistiherbergi, á næstu þremur hæðum er setustofa í sameign og gistiherbergi á gangi. Aðalstigahús er endurnýjað með nýrri lyftu auk starfsmannalyftu. Nýr utanáliggjandi stigi er á norðurgafli ( flóttaleið). Í hótelinu eru bæði einstaklings, tveggjamanna- og fjölskylduherbergi.
Að utan er húsið einangrað og klætt með álklæðningu. Búið er að skipta um alla glugga. Lóðin lagfærð, snyrtileg svo og aðkoman og anddyri. Að innan er húsið allt endurnýjað og endurbyggt frá grunni. Anddyri, stigahús, gangar og önnur sameign hafa öll verið gerð upp og endurnýjuð. Öll herbergin eru fullbúin húsgögnum, tækjum og innbúi. Byggingarréttur að 5.hæð ofaná húsið fylgir með hinu selda (ósamþykktur). Einnig er mögulegt að heimild fáist fyrir 1-2 hæðum þar ofaná sem myndi þá geta stækkað húsið um 30-40 herbergi. Einnig er í húsinu gestamóttaka, morgunverðarsalur, bar og aðstaða starfsfólks.
Lóðin er stór og er öll malbikuð og er sameiginlegt með öðrum húseigendum. Aðkoma að húsinu er góð og auglýsingargildi þess er mjög gott.
Leigusamnningur er til 25 ára við traustan leigutaka sem hefur getið sér gott orð í hótelrekstri í miðbænum og víðar.
Allar nánari upplýsingar gefur Þorlákur Ómar Einarsson lögg.fasteignasali s. 820-2399 eða thorlakur@stakfell.is og Stefán Hrafn Stefánsson hdl. lögg.fasteignasali s. 895-2049 eða stefan@stakfell.is