NÁNARI LÝSING íbúðar 414:
Björt 65,6 fm 2ja herbergja íbúð á 4.hæð með 6,8 fm svölum í suður og austur ásamt stæði í bílgeymslu. Forstofa með skápum. Baðherbergi sem er flísalagt á tveimur veggjum í kringum sturtu, tengi fyrir þvottavél og þurrkara, upphengt salerni, gluggi og falleg innrétting. Eldhús er með eldunareyju, tengi fyrir uppþvottavél og hvítsprautuðum hurðum. Vönduð blöndunar og rafmagnstæki. Úr stofu er gengið út á svalir í suður. Svefnherbergi er rúmgott og með góðum skápum. Sérgeymsla er í kjallara að stærð 11,4 fm ásamt sér bílastæði nr B071.
Á vef vitaborg.is má sjá nánari upplýsingar um íbúðina, skilalýsingu og nánari kynningu á húsinu og framtíðarsýn hverfisins.
Allar nánari upplýsingar gefa eftirtaldir löggiltu fasteignasalar:
Ólafur Finnbogason í síma 822 2307 eða olafur@miklaborg.is
Svan Gunnar Guðlaugsson í síma 697 9300 eða svan@miklaborg.is
Í húsinu eru 70 fallegar og vel hannaðar 2-4ra herbergja íbúðir. Skjólgóður inngarður og gönguleiðir eru hannaður af landslagsarkitekt hússins. Húsið er hluti af heildaruppbyggingu á hluta Baróns- og Laugavegsreits með nýjum göngustígum, uppgerðum eldri húsum auk nýbygginga. Fyrirhugaðar eru listskreytingar á svæðinu í samvinnu við Reykjavíkurborg. Hverfið liggur ákaflega vel við samgöngum og styður vel við bíllausan lífsstíl fyrir þá sem það kjósa.
Í húsinu eru tvær kjallarahæðir með bílastæðum og geymslum. Tvö stigahús með lyftum eru í húsinu. Innkeyrsla í bílakjallara verður um inngötu frá Vitastíg og verður að hluta samnýtt með bílakjallara Skúlagötu 30. Inngangur í stigahús verður frá Hverfisgötu.
Burðarvirki hússins er steinsteypt, veggir einangraðir að utan og klæddir með álkerfi og álplötum. Hluti veggja verður klæddur með viðarklæðningu. Hluti jarðhæðar og kjallara er einangraður að innan og múrhúðaður.
Skoða allar myndir