ALLT FASTEIGNIR – Fasteignasala Suðurnesja SÍMI 560-5515 KYNNIR Lóuland 1 Garði. 4ra herbergja 105.1 fm íbúð ásamt 30.6 fm bílskúr, samtals 135.7 fm í góðu parhúsi. Um er að ræða búseturétt hjá Búmönnum. Útgengt er á góðan sólpall. Upplýsingar gefur Palli í síma 698-6655 pall@alltfasteignir.is Nánar um búseturétt á www.bumenn.is ATH ekki er bundið skilyrði við aldur félagsmanna. Aðilar undir 50 ára aldri geta keypt búseturétt í þessari íbúð.
Nánari lýsing:
Gengið er inn í forstofu, opið rými er frá forstofu þar sem gott sjónvarpshol er. Frá sjónvarpsholinu er gengið til allra herbergja, þvottahús/bílskúr ásamt stofu og eldúss. Parket á gólfum. Þrjú svefnherbergi, þvottahús og úr þvottahúsi er gengið í rúmgóðan bilskúr þar sem möguleiki væri að hafa auka herbergi. Hurð út í bakgarð er í bilskúr. Eldhús er með góðri innréttingu. Gengið er frá bjartri stofu út á sólpall. Sólpallur ný málaður. Bílastæði er hellulagt fyrir tvo bíla. Búsetugjald á mánuðu er 179.000 kr. Verðið miðast við búseturétt.
Hvað er innifalið í mánaðargjöldum?
Sá sem kaupir búseturétt í íbúð Búmanna, greiðir mánaðarlega svonefnt mánaðargjald sem skrifstofa félagsins reiknar út. Innifalið í mánaðargjaldinu er nánast allur kostnaður við að búa í íbúðinni. Nefna má afborganir lána, fasteignagjöld, tryggingar og viðhaldssjóð. Í mánaðarlegu búsetugjaldi er greitt sérstaklega í viðhaldssjóð. Sjóðurinn er fyrir ytra viðhald húsa s.s. vegna sameignar, veggja, þaka, glugga, svala, lagna og ófyrirséðara atvika sem ekki verður rakið til búseturétthafa.
Nánari upplýsingar veitir Páll gsm 698-6655 pall@alltfasteignir.is
ALLT FASTEIGNIR – REYKJANESBÆ