Nánari lýsing íbúðar 405: Eignin er 73,2 fm íbúð á 4.hæð hússins merkt 0504 ásamt sérgeymslu í kjallara merkt 0044. Eigninni fylgir stæði í bílastæðahúsi Y merkt B10. Komið er inn um sameiginlegan inngang. Þegar komið er inn í forstofu eru góðir fataskápar. Vel innréttað eldhús og stofa í einu rými, tvö svefnherbergi með fataskápum. Baðherbergi með innréttingum og flísalögð að hluta, tenglar eru fyrir þvottavél og þurrkara. Útlitsmyndir af eigninni eru ekki úr þessari tilteknu íbúð heldur eingöngu kynningarmyndir. Útlit íbúða er mismunandi.
Helstu kostir við frágang:
- Húsið staðsteypt / Frágangur utanhúss, varin sjónsteypa með lituðum flötum
- Aukin lofthæð í íbúðum
- Vandaðar innréttingar frá HTH
- Eldhústæki, frá AEG, veggofn, spanhelluborð, uppþvottavél, gufugleypir
- Baðherbergi með flísalögðum gólfum og hluti veggja
- Borðplötur í eldhúsum og böðum úr steini
- Milliveggir úr þrýstihertri frauðsteypu
- K einangrunargler
- Aðstaða fyrir rafbílahleðslu í bílastæðahúsi
- Mynddyrasími
- Sorp í djúpgámum
- Ál-tré gluggar og hurðir
- Gólfhiti á baðherbergjum
- Bílastæði í kjallara með flestum íbúðum
- Sameiginlegur garður ofan á bílakjallara
Á vef http://trilluvogur.is/miklaborg má sjá nánari upplýsingar um íbúðina, skilalýsingu og nánari kynningu á húsinu og framtíðarsýn hverfisins.
Hið rótgrónna og fjölskylduvæna Vogahverfi stækkar. Með tilkomu Vogabyggðar myndast falleg ný íbúðabyggð á gömlum grunni. Við Trilluvog rísa vistvænar og nútímalegar íbúðir og raðhús í einstöku umhverfi. Stutt er að sækja alla helstu þjónustu með auðveldu aðgengi að helstu samgönguæðum og í göngufæri við ein af fallegustu útivistarsvæðum borgarinnar.
Einstök hönnun íbúða og raðhúsa við Trilluvog gerir það að verkum að almenn rými eignanna eru mjög opin og björt. Spilar þar aukin lofthæð lykilhlutverk en hún nær allt frá þremur metrum upp í rúmlega fjóra metra.
Hannað af Teiknistofan Tröð. Lóðarhafi og verktaki er Landris
Nánari upplýsingar gefa eftirtaldir löggiltu fasteignasalar:
Svan G. Guðlaugsson í síma 697 9300 eða svan@miklaborg.is
Axel Axelsson í síma 778 7272 eða axel@miklaborg.is
Ólafur Finnbogason í síma 822 2307 eða olafur@miklaborg.is
Óskar H. Bjarnasen í síma 691 1931 eða ohb@miklaborg.is
Jórunn Skúladóttir í síma 845 8958 eða jorunn@miklaborg.is
Skoða allar myndir