Húsið sem stendur við Ljósheima 14-18 er hannað af Hannesi Kr. Davíðssyni árið 1965. Hannes hannaði meðal annars Kjarvalsstaði. Hverfið byggðist upp á sjöunda áratugnum og þekkt fyrir Sigvalda Thordarsen, Einar Sveinsson og Hannesar Kr. Davíðsson hönnun, þar sem einkennir þá er góð nýting á fermetrum í björtum rýmum. Húsið er 9 hæða steinsteypt íbúðarhús ásamt kjallara. Í húsinu eru 56 íbúðir. Tvær lyftur og eitt stigahús. Á 1-8 hæð eru 7 íbúðir á hæð. Á 9 hæð er sameiginlegt fundaherbergi.
Nánari lýsing á íbúðinni: Komið er inn í sameigninlega forstofu. Gengið er inn í íbúð af svölum. Þegar komið er inn í forstofu sem er opin inn í hol sem leiðir þig í allar vistaverur íbúðarinnar. Tvö svefnherbergjana er með góðum (nýjum) skápum. Eitt af svefnherbergunum er um leið og komið er inn í hol, sem er bjart og rúmgott, með fataskápum. Annað svefnherbergið er mjög rúmgott og bjart, gólfsíðir gluggar með útgent út á svalir. Þriðja svefnherbergið er einnig rúmgott með góðu skápaplássi. Í holi er skot sem má nota fyrir vinnuaðstöðu eða skápa pláss. Baðherbergið er flísalagt og með sturtu með glerskilrúmi. Á baði er gluggi og skápur undir handlaug.
Stofan er mjög rúmgóð með gólfsíðum gluggum, þaðan er mikið útsýni til vesturs. Úr stofu er útgengt út á svalir. Stofan er opin inn í eldhús. Eldhúsið er ný innréttað með glæsilegri innréttingu, viðar efri skápum annars er innréttingin hvít. Í eldhúsi eru ný tæki, uppþvottavél fylgir. Gert hefur verið ráð fyrir þvottavél í innréttingunni.
Eigninni fylgir geymsla í kjallara. Mikil sameign í kjallara, hjólageymsla, snyrting og sameiginlegt þvottahús og geymslur. Á lóðinni eru 40 bílastæði og um 15 bráðabirgðabílastæði á bílskúrslóð. Þak var yfirfarið árið 2018, önnur lyftan var endurnýjuð og framhlið húss sprunguviðgerð.
Um er að ræða einstaklega glæsilega íbúð sem hefur verið öll yfirfarin að innan. Frábær staðsetning, grunn-, framhalds- og leikskóli í göngufæri, ásamt verslun og þjónusta. LAUS STRAX
Nánari lýsing á eigninni veitir Jórunn lögg. fasteignasali í síma 845-8958 eða jorunn@miklaborg.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% fyrstu kaup / 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila 2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali. 3. Lántökugjald lánastofnunar eru mismunandi eftir lánastofnunum frá kr 30 – 81 þúsund. 4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Skoða allar myndir