Kjöreign ehf., kynnir alla efstu hæðina, skrifstofuhæð, ásamt turnherbergjum í Borgartúni 6, Reykjavík, (rúgbrauðsgerðin). Húsið er í góðu ástandi að utan. Rúmgóð lyfta er í húsinu sem gengur milli allra hæða. Stigahúsið er rúmgott og í góðu ástandi. Fyrirkomulagi hússins hefur verið breytt frá upphaflegri gerð. Eignin var algjörlega endurgerð á árunum 2006 til 2007. Gluggar eru álgluggar á neðri hluta hæðarinnar og nýir stórir opnanlegir þakgluggar á efri hluta hæðarinnar. Allir gluggar hússins hafa verið endurnýjaðir nema á framhliðinni. Útsog er í lokuðum rýmum. Allir útveggir og loft eru gipsklædd. Allt lagnakerfi hæðarinnar er endurnýjað. Þak hússins er endurnýjað. Tveir brunastigar eru frá hæðinni. Aðgengi er um góðan stiga upp í turnhæðina frá hæðinni fyrir neðan. Eigninni fylgir hlutdeild í rúmgóðu sameiginlegu rými á hæðinni fyrir neðan út frá stigahúsinu að stiga upp á efstu hæðina. Hæðinni fylgir einnig rúmgóð geymsla í kjallara hússins. Bílastæði eru á baklóðinni og fyrir framan húsið.
Aðalhæðin er á misháu gólfi og skiptist þannig;
Neðri hluti; Gólf þessa hluta hæðarinnar er ekki steypt. Gólf á þessum hluta hæðarinnar er dúklagt. Úr sitt hvorum enda hæðarinnar eru hringstigar úr lokuðum starfsstöðvum upp í turnherbergin. Hæðin er að mestu opið vinnurými með litlum lokuðum skrifstofum í norðurhluta hæðarinnar og stærri skrifstofum í endum hæðarinnar. Veggir herbergja eru glerveggir.
Efri hluti; Þessi hluti hæðarinnar er á efra gólfi og er gólfplatan steypt. Steinteppi eru á þessum hluta hæðarinnar. Í miðrýminu er rúmgóð kaffistofa með innréttingu, fundarherbergi í norðurhluta hæðarinnar og í suðurenda hæðarinnar er opið vinnurými og lokuð vinnustöð innst. Á hæðinni eru einnig snyrtingar og ræstiklefi. Á gangi eru skápar. Veggur er skilur af hæðina nær ekki upp í loft.
Upplýsingar gefa sölumenn Kjöreignar ehf., í síma 533-4040.
Dan Wiium lögmaður og lögg. fasteignasali s. 896-4013, dan@kjoreign.is
Jón Bergsson lögmaður og lögg. fasteignasali s. 777-1215, jon@kjoreign.is
Þórarinn Friðriksson lögg. fasteignasali s. 844-6353, thorarinn@kjoreign.is
Ásta María Benónýsdóttir lögg. fasteignasali s. 897-8061, asta@kjoreign.is