*Fasteignasalan TORG kynnir: *Bókið skoðun í s. 820-2222 *Fallegt og sérlega vel skipulagt endaraðhús á einni hæð með innbyggðum bílskúr. Húsið getur verið laust til afhendingar við kaupsamning. Húsið skiptist í: Forstofu, gestasalerni, alrými með eldhúsi og stofu, stórt baðherbergi með baðkari og sturtu, þrjú góð svefnherbergi, sér sjónvarpshol, rúmgott þvottahús og bílskúr. Eignin er fullbúin að innan sem utan. Lóð er frágengin með torfi og hellum á lóð og hellulögðu bílaplani með snjóbræðslu. Innan húss eru komin öll gólfefni, flísar og harðparket, góðar innréttingar með miklu skápaplássi, innfelld lýsing í loftum og aukin lofthæð að hluta. Á gólfi í bílskúr er epoxy sem gengur nokkra sentimetra upp á veggina. Rafmagnshurðopnari er á bílskúrhurð.
Allar nánari upplýsingar veitir Hafdís Rafnsdóttir lögg.fasteignasali í síma 820-2222 eða hafdis@fstorg.is
Birt stærð eignar eru 184 m2, þar af er bílskúr 26,8 m2. Húsið stendur á frábærum stað og er falleg fjallasýn frá húsinu. Eignin er staðsett í nýju fjölskylduvænu hverfi í Helgafellslandi í Mosfellsbæ. Hverfið er í bland sérbýli og fjölbýli. Stutt er í útivist, fjallgöngu og einstaka menningu í Álafosskvosinni.
Nánari lýsing eignar:
Forstofa: komið er inn í rúmgóða forstofu með flísum á gólfi og góðum þreföldum fataskápum.
Bílskúr: Innangengt er í bílskúr frá forstofunni. Epoxy er á gólfi sem gengur nokkra sentimetra upp á veggina, rafmagnshurðaopnari og vaskur með heitu og köldu neysluvatni.
Gestasalerni: Innaf forstofu er gestasalerni með salerni og handlaug. Fallegar flísar eru á gólfi.
Alrými: Eldhús, stofa + borðstofa: Þegar komið er inn úr forstofunni er komið inn í alrými. Eldhús, stofa + borðstofa eru saman í opnu björtu rými. Aukin lofthæð og innfelld lýsing í loftum. Gluggar á tvo vegu. Fallegt harðparket er á gólfi. Útgengi er frá stofunni út á lóðina fyrir fram húsið sem snýr í vestur. Eldhúsið er mjög stórt með innréttingu í U og með einstaklega miklu skápaplássi.
Baðherbergi: Aðalbaðherbergið er mjög stórt með fallegum flísum á gólfi og á veggjum. Á baðherberginu er bæði baðkar og stór sturta sem er beint á gólf með glerskilrúmi. Mjög stór og góð innrétting er undir vaski. Opnanlegur gluggi er í rýminu. Handklæðaofn er á vegg.
3 x svefnherbergi: Svefnherbergin eru þrjú, öll mjög rúmgóð með fallegu harðparketi á gólfi. Þrefaldur fataskápur er í báðum barnaherbergjum og fjórfaldur fataskápur er í hjónaherbergi. Frá hjónaherbergi er útgengi út á hellulagða verönd á bak við húsið.
Sjónvarpshol: Sjónvarpshol er sérstætt og gluggalaust en með loftun. Fallegt harðparket er á gólfi.
Þvottaherbergi: Þvottaherbergið er mjög rúmgott með epoxy á gólfi, innréttingu og vinnuvaski.
Allar nánari upplýsingar veitir Hafdís Rafnsdóttir lögg.fasteignasali í síma 820-2222 eða hafdis@fstorg.is
Skilalýsing verktaka er eftirfarandi:
Utanhúss: Húsið er staðsteypt og eru veggir steinaðir að utan með ljósum steiningarsalla og ljósu steiningarlími. Gluggakantar og vatnsbretti eru slétt pússuðum með steiningarlími. Þak er klætt með aluzink báruklæðningu með aluzink flasningum á brúnum við þakkanta. Rennur og niðurfallsrör eru úr formáluðu áli. Þakkantur er úr bandsöguðum máluðum furupanel að framan og máluðum furulistum að neðan. Gluggar og hurðir eru verksmiðjuframleiddir og vottaðir og koma frá Glerborg ehf. Um er að ræða álklædda timburglugga og álklæddar svalahurðir sem eru settar í eftir uppsteypu hússins. Anddyrishurð er úr Sipo harðvið(krossvið) með gegnheilum körmum. Bílskúrshurðar eru úr áli og eru með rafmagnsmótor. Útiljós og útitenglar eru frágengnir.
Innanhúss: Eignin skilast fullbúin skv. byggingarstig 7 ÍST 51:2001. Loft: Loft er einangrað milli sperra með frágenginni rakkasperru þar fyrir neðan. Niðurtekinn loft eru gipsklætt, spörtluð, grunnað og fullmálað. Gólf: Í alrýmum og herbergjum er harðparket, í salernum og anddyri eru flísar, í þvottahúsi og búlskúr er epoxý. Innveggir: Innveggir eru úr LEMGA hleðslustein uppsettir samkvæmt teikningu spartlaðir, grunnaðir og málaðir. Rafmagn: Full frágengið skv teikningu. Frágangur raf- og boðlagna er miðaður við samþykktar skipulagsteikningar. Vinnuljós er tengt í hvert herbergi. Innfeld ljós eru tengd skv teikningum. Pípulagnir: Frágangur neyslu og fráveitulagna er miðaður við samþykktar skipulagsteikningar. Ofnar eru uppsettir og tengdir. Neysluvatn er lagt í gólf og veggi samkvæmt teikningum. Hita-, rafmagns og vatnslagnir eru lagðar í gólfplötu, steypta innveggi og hlaðna veggi samkvæmt teikningum. Stofninntök neyslu vatns og heita vatns eru tengd og frágengin. Tenglar og rofar, útiljós, dyrabjalla er allt frágengið skv teikningum.
Lóð: Frágangur milli aðliggjandi lóða er með grjóthleðslu sem búið er að ganga frá. Lóð er því sem næst tilbúinn með torfi á baklóð og við gafl. Hellur eru við útgang garðmegin. Bílaplan og framan við hús er hellulagt með snjóbræðslu.