Miklaborg kynnir: Vandaðar 2ja til 5 herbergja lúxusíbúðir á einstökum útsýnisstað í þessu glæsilega húsi „STUÐLABORG“ við Hallgerðargötu 7 við Kirkjusand í Reykjavík, nálægt miðborg Reykjavíkur og í nálægð við Laugardalinn. Miklaborg kynnir: 100 fm íbúð á 5. hæð. 3 herbergja íbúð með tvennum svölum á 5.hæð. Íbúðin er með sjávarútsýni til norðurs og útsýni til suðurs. Komið er inní anddyri, baðherbergi með sturtu. Aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara. Svefnherbergi með fataherbergi og innangengt í sér baðherbergi með baðkari. Úr svefnherbergi er gengið út á suðursvalir. Eldhús er opið að hálfu inní stofu. Stofan með útgengi út á svalir sem snúa til norðvesturs. Hægt er að bæta við svefnherbergi á kostnað stofu. Geymsla er að stærðinni 10,5 fm og er í kjallara. Íbúðin er númer 505 og skilast fullbúin án megin gólfefna.
Stærðir íbúða eru frá 58-254 fm. Fjölbreytileiki ræður ríkjum í íbúðabyggingum í hverfinu, hvort sem er litið er til skipulags, útlits, herbergjafjölda eða stærða íbúða, sem þar verða í boði. Stórkostlegt útsýni er til norðvesturs yfir sundin blá, en einnig til suðausturs yfir græna og gróna byggð og útivistarsvæði Laugardalsins.
Stuðlaborg er 77 íbúða bygging í 5 stigagöngum og verður eitt vandaðasta íbúðarhúsið í hverfinu. Innréttingar og tæki af viðurkenndum og vönduðum gerðum. Borðplötur innréttinga verða úr kvartsteini. Gólfhitakerfi verður í öllum íbúðum og njóta gólfsíðir gluggar byggingarinnar sín þannig eins og best verður á kosið. Öll rými verða að fullu loftræst inn og út og þarf því ekki að opna glugga til að fá ferskt loft inn í íbúðarrými. Loftræstingin tryggir betri loftgæði og er góð vörn gegn raka og ryki. Hljóðvist í húsinu er í hávegum höfð hvort sem um er að ræða hljóð utan eða á milli íbúða hússins. Uppbygging útveggja og þaks sem og hljóðeinangrun glugga er eins og best verður á kosið að teknu tilliti til hljóðvistar.
Alls verða bílastæði fyrir rúmlega 1200 bifreiðar í sameiginlegri bílageymslu undir svæðinu, þar sem auðvelt aðgengi verður að rafhleðslustöðvum.
Nánar af heimasíðu.
Hönnuðir byggingarinnar eru hin heimsþekkta danska arkitektastofa Schmidt/Hammer/Lassen og íslenska arkitektastofan VA arkitektar. SHL hafa hannað margar heimsþekktar byggingar víða um heim líkt og konunglega bókasafnið í Kaupmannahöfn, „Kristallinn“ í Kaupmannahöfn. Arkitektastofa Schmidt/Hammer/Lassen hannaði einnig Skuggahverfið í Reykjavík. VA arkitektar hafa unnið til fjölda verðlauna fyrir verk sín, þar á meðal hefur stofan fjórum sinnum verið tilnefnd fyrir hönd Íslands til hinna virtu Mies van der Rohe. Byggingaraðili er ÍAV hf. ÍAV hf. er eitt stærsta og öflugasta verktakafyrirtæki Íslands í dag. Eitt stærsta verk ÍAV er Harpa, ráðstefnu og tónlistarhús Reykjavíkur. Í göngufæri við útivistarperluna í Laugardal og stutt í miðbæ Reykjavíkur.
Í göngufæri við útivistarperluna í Laugardal og stutt í miðbæ Reykjavíkur.
Nánari upplýsingar veitir:
Jason Ólafsson s. 775 1515 – jassi@miklaborg.is
Þórunn Pálsdóttir s:773-6000 og thorunn@miklaborg.is
Skoða allar myndir