Merkihvoll, sumarhús á frábærum stað.
Fasteignasalan Fold, s.5521400 kynnir: Gott heilsárshús, Merkihvoll, nálægt Galtalækjarskógi og með fallegu útsýni m.a.til Heklu. Á rennur við landið. Bústaðurinn er byggður úr timbri og er með háu risi sem notað er sem sjónvarpsherbergi í dag. Um 100 fm pallur er í kringum bústaðinn. Í stofu og eldhúsi er parket. Eldhús er með fallegri innréttingu. Þrjú svefnherbergi. Stofa með kamínu og útgengt á pallinn sem er með mjög vönduðum rafmagnskyntum heitum potti. Baðherbergi er snyrtilegt og rúmgott. Gróðurhús á lóð.
Viðbygging, 20 fm er við bústaðinn með einu svefnherbergi, sturtuaðstöðu, búri og kaldri geymslu.
Rafmagn er í bústaðnum og vatnið kynt upp með því. Lóðin er leigulóð.
Leiðarlýsing: Ekið er út af þjóðvegi við vegvísi til Galtalækjar. Ekið framhjá Galtalæk, út af malbiki , yfir sauðfjárgrind beygt til hægri þar sem merkt er Merkihvoll, ekið inn afleggjara, bústaðurinn er eini bústaður sem er neðan vegar.
Fold fasteignasala, Sóltúni 20, 105 Reykjavík. fold@fold.is
Sími 552 1400 / utan skrifstofutíma: ,Viðar 694-1401 , Einar 893-9132 Gústaf 895-7205
www.fold.is
Við erum á Facebook