LANDMARK fasteignamiðlun kynnir: Fallegur sælureitur í Tunguskógi á Ísafirði. Ysti Mór er 35,9 fm sumarbústaður á skjólgóðum og grónum stað með fallegu útsýni yfir Tungudal. Skv. Þjóðskrá er húsið skráð 44,3 fm en þar er gert ráð fyrir 9 fm stækkun sem er á byggingastigi 2, s.s. búið að steypa undirstöður fyrir stækkun á svefnálmu.
Að sögn seljenda var húsið mikið endurnýjað fyrir um 6 árum og stækkað. T.a.m. voru gluggar endurnýjaðir og útihurð sem og eldhús og fleira.
Gengið er inn í húsið af stórri verönd. Komið er inn í alrými, stofu og eldhúsi með viðargólfi. Falleg innrétting er í eldhúsi. Svefnherbergið er nokkuð rúmgott með viðargólfi. Baðherbergið er rúmgott einnig með sturtuklefa. Við hlið baðherbergis er gert ráð fyrir stækkun hússins. Mjög gott geymslurými er undir húsinu.
Umhverfi hússins og lóð er falleg og vel viðhaldið.
Upplýsingar veitir Sigurður Samúelsson Lgf í síma 896-2312 eða ss@landmark.is
—————————————————————
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LANDMARK fasteignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 69.900.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunar
Fáðu frítt sölumat á eignina þína HÉRNA