Fold fasteignasala, s.5521400, fold@fold.is kynnir:
Hemruhlíð, Skaftárhreppi
Um er að ræða 34,3 ha. svæði sem skilgreint er á aðalskipulagi sem frístundabyggð. Landið liggur austur af svipmiklu klettabelti og lægri ás sem liggur á lóðarmörkum Hemruhlíðar og Hemruskóga. Landið er ágætlega gróið náttúrulega birkikjarri og hallar að mestu til austurs að Tungufljóti. Útsýni er til allra átta en austan og sunnan áttir veita mesta yfirsýn. Til norðurs liggja Hemrumörk þar sem skógrækt setur sterkan svip sinn á landið. Búið er að gera drög að deiliskipulags uppdrætti fyrir svæðið, skv. því er gert ráð fyrir allt að 20 lóðum á bilinu 0,5-1,5 hektarar hver auk sameiginlegar svæða fyrir leiksvæði, stíga, brýr og ræsi. Aðkomuvegur inn á svæðið verður frá Hemruvegi. Lögð er áhersla á að allar lóðir hafi gott aðgengi að sameiginlegum svæðum. Reynsla á aðliggjandi svæðum gefur til kynna að ekki sé djúpt að bora eftir góðu neysluvatni.
Falleg svæði sem býður upp á mikla möguleika og viðskiptatækifæri.
Fold fasteignasala, Sóltúni 20, 105 Reykjavík. fold@fold.is
Sími 552 1400 / utan skrifstofutíma: ,Viðar 694-1401 , Einar 893-9132, Gústaf 895-7205
www.fold.is
Við erum á Facebook
Skoða allar myndir