Upphaflega er húsið byggt 1990 en síðar meir er bætt við það. Það stendur á steyptum stólpum og er búið að tengjast við heitt vatn. Vír er í kaldavatnslögn og húsakosturinn því vel nýtilegur allt árið um kring. Vistarverur eru mjög rúmgóðar en þrjú svefnherbergi eru í húsinu þar af stórt hjónaherbergi með fataskápum. Einnig er svefnloft.
Alrými er glæsilegt með fallegri eldhúsinnréttingu m. gaseldavél og uppþvottavél. Fallegar furu gólffjalir á gólfum og veggir hvíttaður panell eða heilmálað. Kamína í horni stofu sem gefur mikinn varma.
Hol á milli eldra og nýrra hús er flísalagður og þar er aðstaða fyrir þvottavél og útgengt út á viðarverönd.
Lóðin er ægifögur, mikill gróður og grasblettir einnig. Lítið hús fyrir börnin er til viðbótar við uppgefna fermetra en þar mætti koma upp gestahúsi eða halda óbreytt sem huggulegt barnakot.
Ársleiga á lóð er í dag um 100 þúsund á ári en nýr samningur verður gerður til 25 ára. Greitt er fast gjald fyrir heita vatnið ca 10 þúsund krónur á mánuði. Að sögn eiganda er rafmagnskostnaður ca.5 þúsund á mánuði en eðlilega háð notkun.
Fallegur pallur við húsið á tveimur hæðum og með lýsingu.
Nánari upplýsingar veitir Jón Rafn lögg. fasteignasali í síma 695-5520 eða jon@miklaborg.is
Skoða allar myndir