HÚSASKJÓL KYNNIR:
Leirdalur 32 er seldur og er í fjármögnunarferli. Aukin eftirspurn er eftir sérbýlum í Reykjanesbæ. Við erum með 10 kaupendur á skrá sem eru að leita að sambærilegri eign.
Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Skráðu þig á mínar síður og vertu fyrstur til að fá fréttirnar: Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar
Viltu vita hvað okkar viðskiptavinir hafa að segja: Smelltu hér til að lesa umsagnir viðskiptavina
Viltu vera með puttann á fasteignapúlsinum: Smelltu hér til að skrá þig á fréttabréfið okkar
SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ BÓKA TÍMA Í SÖLUSKOÐUN OG PANTA UPPLÝSINGABÆKLING FYRIR EIGNINA.
218 fm. einbýlishús á einni hæð, þar af bílskúr 53.4 fm. Húsið er með 4 svefnherbergjum. Leyfi er fyrir nuddstofu/snyrtistofu í forstofuherbergi og þar er auka salerni. Húsið er timburhús frá Lettlandi og vel einangrað. Þetta er spennandi eign sem býður upp á marga möguleika.Fyrir framan hús er 25 fermetra sólpallur og gert ráð fyrir 100 fm palli fyrir aftan hús með tengi fyrir potti.
Húsið er allt nýmálað/viðarborið að utan með 10 ára endingu.
Lýsing eignar:
Komið er inn í forstofu með flísum á gólfi og fataskáp. Gólfhiti er í öllu húsinu og flísar. Innaf forstofu er forstofuherbergi með salerni. Rúmgott svefnherbergi með föstum fataskáp er við hlið forstofuherbergis og er hurð á milli þessara herbergja sem eykur nýtingarmöguleika á forstofuherberginu til muna. Einnig mætti skipta því herbergi í 2 minni. Frá forstofu er gengið inn alrými sem í dag er nýtt sem sjónvarpshol. Innaf sjónvarpsholinu er stofan og þaðan er útgengt í garðinn. Hjónaherbergi er rúmgott með góðu skápaplássi. Baðherbergi er mjög rúmgott með stórum sturtuklefa, innréttingu og upphengdu salerni. Frá baðherbergi er útgengt í garðinn. Þar er gert ráð fyrir 100 fm. palli/hellulögn og einnig er tengi fyrir heitan pott. Þvottahús er með tengi fyrir þvottavél og þurrkara, innréttingu og snúrum. Eldhúsið er gott vinnueldhús. Mjög mikið bekkja- og skápapláss. L-laga innrétting með efri og neðri skápum, einnig innrétting á veggnum á móti og eyja á milli. Spanhelluborð, veggofn, innbyggð uppþvottavél og pláss fyrir tvöfaldan ísskáp. Stór borðkrókur við gluggann. Þetta er sannkallað fjölskyldueldhús. 4ja svefnherbergið er við hlið eldhúss, fastur fataskápur í herbergi. Stór geymsla með hillum innanhús en einnig er köld útigeymsla. Bílskúrinn er innangengur og með góðri lofthæð. Tengi fyrir salerni í bílskúrnum sem eykur notagildi hans til muna og möguleiki á að breyta honum í aukaíbúð. Gönguhurðir í bílskúr bæði fyrir framan og aftan hús.
Litað gler er í öllum rúðum. Útiljós allan hringinn með birtuskynjurum og útitenglar bæði að framan og aftan sem eru tengdir sólarúri. Núverandi eigendur byggðu húsið.
Staðsetning:
Nýji Stapaskólinn er í 5 mínútna göngufæri og einnig leikskóli. Verið er að byggja íþróttahús og sundlaug. Mikil þjónusta er í næsta umhverfi, s.s. kjörbúð, hárgreiðslustofa, Bónus, Krónan, Húsasmiðjan, Orkan og veitingastaðir. Bakvið húsið á móti er grænt svæði og leikvöllur. 4 akstursleiðir eru út úr Leirdalnum.
Allar nánari upplýsingar veitir Ásdís Ósk Valsdóttir, löggiltur fasteignasali í email: asdis@husaskjol.is eða síma: 863-0402
Húsaskjól fasteignasala – af því að þín fasteign skiptir máli
Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar
Fylgdu okkur á Instagram
Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja
Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls
Ertu í fasteignahugleiðingum erlendis? Húsaskjól er meðlimur í Leading Real Estate Companies of the World
Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer, sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – fast gjald. Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði