Stigagangur C. Íbúð 311:
Sérlega vel skipulögð og björt 108,3 fm, 4ra herberbergja íbúð á 3.hæð ásamt stæði í bílageymslu. Komið inní anddyri með skápum. Tvö góð barnaherbergi með skápum. Baðherbergi er með sturtu, upphengdu salerni, og fallegri sérsmíðaðri innréttingu. Gestasalerni með lítilli innréttingu. Eldhús er með L-laga innréttingu og er opið inn í stofu en skilið frá með eldunareyju. Vönduð tæki.. Stofunni er skipt upp í stofu og borðstofu. Útgengt á svalir með svalalokun frá stofunni. Hjónaherbergi með góðum skápum. Sér þvottahús er innan íbúðar. Í kjallara fylgir sér geymsla og stæði í lokaðri bílageymslu. Eignin afhendist fullbúin með flísum á votrýmum og fallegu harðparketi á öðrum gólfum.
Allar nánari upplýsingar er að finna á www.kuggavogur.is
Allar nánari upplýsingar gefa:
Friðrik Stefánsson lögm. í síma 616-1313 eða fridrik@miklaborg.is
Ólafur Finnbogason löggiltur fasteignasali í síma 822 2307 eða olafur@miklaborg.is
Þórhallur Biering löggiltur fasteignasali í síma 896-8232 eða thorhallur@miklaborg.is
Skoða allar myndir