ATH eignin er seld með fyrirvara um fjármögnun, það skýrist eigi síðar en 26.mars 2021
NÝTT Í SÖLU – SUÐURGATA 37, 96,3 fm, mikið endurnýjuð, ósamþykkt íbúð í virðulegu húsi við Suðurgötu 37 í Reykjavík. (á horni Suðurgötu og Skothúsvegar)
Valhöll fasteignasala, og Heiðar Friðjónsson löggiltur Fasteignasali, sími:693-3356, kynna: Nýkomin í sölu glæsileg íbúð í kjallara við Suðurgötu 37 í Reykjavík, teiknað af Einari Sveinssyni arkitekt.
Sérrinngangur er á austurhlið húsins. Íbúðin skiptist í tvö herbergi með parketi á gólfum og skáp, eldhús með fallegri innréttingu, ískápur og uppþvottarvél fylgja. Stofan er rúmgóð með hornglugga. Baðherbergi með flísum á veggjum og gólfi, glugga og lagt fyrir þvottavél á baðherbergi. Geymsla innan íbúðar.
Um er að ræða mikið endurnýjaða íbúð í kjallara í reisulegu húsi á frábærum stað í Reykjavík, búið er að endurnýja húsið mikið, meðal þess sem búið er að gera er: Nýjar fráveitulagnir eru í öllu húsinu, með nýjum brunnum og nýrri lögn út fyrir lóðarmörk, nýjar neyslu og gólfhitalagnir, nýtt rafmagn og tafla, ný gólfefni, innréttingar og hurðar, nýtt gler og gluggar, með nýjum opnanlegum fögum. Búið er að endurnýja húsið nokkuð að utan og helluleggja hluta af garði.
Allar nánari upplýsingar og milligöngu um skoðun annast Heiðar Friðjónsson löggiltur Fasteignasali S. 693-3356 heidar@valholl.is
Ertu í fasteignahugleiðingum, Þarftu að selja ? Ég veiti afburða þjónustu og eftirfylgni, byggða á 20 ára samfeldu starfi við fasteignasölu á Íslandi, sanngjörn söluþóknun, sláið á þráðinn í síma 693-3356
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Allar nánari upplýsingar og milligöngu um skoðun annast Heiðar Friðjónsson löggiltur Fasteignasali s.693-3356 heidar@valholl.is
Ertu í fasteignahugleiðingum, Þarftu að selja ? Ég veiti afburða þjónustu og eftirfylgni, byggða á 20 ára samfeldu starfi við fasteignasölu á Íslandi, sanngjörn söluþóknun, sláið á þráðinn í síma 693-3356.
VALHÖLL FASTEIGNASALA SÍÐAN 1995 – FARSÆL OG ÖRUGG FASTEIGNAVIÐSKIPTI – EINGÖNGU LÖGGILTIR FASTEIGNASALAR OG LÖGFRÆÐINGAR ANNAST ÞÍN SÖLUMÁL HJÁ OKKUR. VALHÖLL ER FRAMÚRSKARANDI FYRIRTÆKI SAMKVÆMT GREININGU CREDITINFO 2015, 2016 OG 2017, EN AÐEINS 2,2% FYRIRTÆKJA Á ÍSLANDI NÁÐU ÞEIM GÆÐASKILYRÐUM.