Eignatorg kynnir: Nýtt á skrá – Um er að ræða u.þ.b. 62 hektara landspildu sem liggur meðfram þjóðvegi 1, rétt austan við Seljalandsfoss.
Landið hefur vegtengingu bæði frá þjóðvegi 1 og Sandhólmavegi nr. 247.
Landið hentar afar vel til uppbyggingar vegna ferðaþjónustu og eins til landbúnaðarnota. Spildan er í dag að mestu ræktuð sem tún.
Allar nánari upplýsingar veitir Björgvin Guðjónsson löggiltur fasteignasali í síma 510-3500 / 615-1020 eða bjorgvin@eignatorg.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi – 0,4% – 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðflutningsskjölum, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – almennt 1% – 1,8% af fjárhæð skuldabréfa. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. þjónustusamning.