Lindin fasteignir s. 893-1319 og Þórdís Pála Reynisdóttir löggiltur fasteignasali thordis@lindinfasteignir.is kynna: Miðstræti 8A, Neskaupstað, íbúð 0101. Um er að ræða snyrtilega 2ja herbergja íbúð með sér-inngangi. Íbúðin er á neðstu hæð í vesturenda hússins. Falleg stétt er við innganginn. Komið er inn í litla flísalagða forstofu og þaðan inn í eldhús með nýlegri innréttingu og parketi á gólfi. Úr eldhúsinu er gengið inn í svefnherbergi, þar er parket á gólfi. Við hlið eldhússin er lítið hol. þaðan er gengið inn í stofuna á aðra hönd og baðherbergi á hina. Á baðherberginu er sturtuklefi og aðstaða fyrir þvottavél. Flísar eru á gólfi og lítill skápur undir vaski. Íbúðin hefur öll verið endurnýjuð fyrir nokkrum árum (nema 1 gluggi í stofu). Flestir gluggar eru PVC gluggar með nýlegu gleri. Íbúðin er í gömlu og fallegu steinhúsi en kominn er tími á viðgerðir utanhúss.
Kostnaður kaupanda:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi – 0,8% af heildarfasteignamati en 0.4% fyrir fólk sem er að kaupa sína fyrstu fasteign. Lögaðilar greiða 1.6% af fasteignamati.
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi, umboði o.fl. 2.000 kr. af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar – almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu 48.980 kr. m.vsk.