BERG fasteignasala kynnir:
Glæsilegar skrifstofuhæðir lausar til leigu á fjórðu, fimmtu og sjöttu hæð byggingarinnar. Möguleiki er á skiptingu hæðanna frá 300 – 870 fm.
Hæðirnar eru bjartar með stórum gluggum til norðurs með glæsilegu útsýni. Þegar unnið var að heildarendurgerð hússins var haft að leiðarljósi mikilvægi staðsetningarinnar og hversu fjölfarin Suðurlandsbrautin er. Vandað var til allra uppbyggingar í takt við nútímaþarfir en uppbyggingin var í takt við vinningstillögu Arkís eftir arkitektasamkeppni. Ljóst er að í dag er húsið eitt að kennileitum götunnar.
Laus til leigu þrjú verslunar- og /eða veitingarými á jarðhæð byggingarinnar. Tvö eru rúmlega 80 fm staðsett austan megin og það þriðja er um 300 fm á vestur enda byggingarinnar.
Í lágreistu byggingunni sem er áföst til austurs er 260 fm verslunar- og /eða veitingarými laust til leigu.
Bílastæðishús á þremur hæðum stendur á baklóð hússins sem og baklóðar Suðurlandsbrautar 8 en saman tengist það með skábraut sem myndar einskonar rós milli húsanna tveggja. Alls eru þar um 200 bílastæði.
Nánari upplýsingar hjá Berg fasteignasölu í síma 588-5530 eða eftirfarandi starfsmönnum:
Davíð Ólafsson löggiltur fasteignasali, löggiltur leigumiðlari og viðskiptafræðingur – sími. 766-6633 – netfang: david@berg.is
Heimasíða Berg fasteignasölu: www.berg.is
Skoða allar myndir