Miklaborg kynnir: Mjög áhugaverð 406,5 hektara jörð skammt frá höfuðborginni og í alfaraleið ferðamanna sem sækja Þingvelli heim en jörðin liggur meðfram Þingvallaveginum. Frá jörðinni er glæsilegt útsýni yfir Þingvallavatn. Möguleikar eru margir en m.a. hefur verið tekið mjög jákvætt í uppbyggingu frístundabyggðar á landinu og fjárfestingatækifærið út frá því er einstaklega gott út frá vaxandi eftirspurn eftir frístundalóðum sem hefur stóraukist á s.l. mánuðum.
Landið hefur verið hnitsett og selst í heilu lagi. Landið er steinsnar frá þjóðgarðsmörkum og er allt fyrir ofan veg. Neðan vegar er deiliskipulagt sumarhúsasvæði sem er ekki partur þessa lands.
Nánari upplýsingar veitir Jón Rafn lögg. fasteignasali í síma 695-5520 eða jon@miklaborg.is
Skoða allar myndir