LANDMARK FASTEIGNAMIÐLUN 512.4900 KYNNIR:
Um er að ræða 2ja herbergja íbúð í fjölbýlishúsi á þessum vinsæla stað í Árbænum.
Íbúð er alls 59.6 fm og skiptist í 55.5 fm íbúðarrými og 4.1 fm sérgeymslu í sameign.
Mjög stutt er í alla þjónustu, skóla, leikskóla, sundlaug, íþróttar og útivistarsvæði.
ÍBÚÐ ER Í ÚTLEIGU Í DAG MEÐ ÁGÆTIS LEIGUTEKJUM OG LÝKUR LEIGUSAMNING Í LOK MAÍ 2021.
Upplýsingar um eign og bókun á skoðunartíma:
Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s. 6900.820 eða sveinn@landmark.is
Eignin skiptist í:
Forstofu, gang, stofu/borðstofu, eldhús, svefnherbergi, baðherbergi og sérgeymslu í sameign.
Sameiginlegt þvottaherbergi og hjóla/vagnageymsla í sameign.
Nánari lýsing á eign:
Komið er inní forstofu/hol og þar er innbyggður fataskápur.
Stofa/borðstofa er eitt opið rými með inngengi í eldhús, útgengt á rúmgóðar suður-svalir úr stofu.
Eldhús er rúmgott með eldri innréttingu, efri og neðri skápar í innréttingu og eru flísar á vegg milli skápa, borðkrókur.
Svefnherbergi er nokkuð rúmgott með innbyggðum fataskáp.
Baðherbergi er vel skipulagt, baðkar, flísar á veggjum, innrétting með skáp í kringum vask.
Sérgeymsla á jarðhæð sem er nokkuð rúmgóð og eru hillur í geymslu.
Sameiginlegt þvottaherbergi og hjóla/vagnageymsla.
Gólfefni: Parket, korkflísar og flísar á gólfum eignar.
-Vegna mikillar sölu undanfarið þá vantar allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og ég kem og met eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sveinn Eyland lögg.fasteignasali gsm: 6900.820 eða sveinn@landmark.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LANDMARK fasteignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 69.900.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunar
Fáðu frítt sölumat á eignina þína HÉRNA