Heimili fasteignasala kynnir í einkasölu: Maríugata 21 í Urriðaholti í Garðabæ. Sérlega vel skipulagt endaraðhús á tveim hæðum með innbyggðum bílskúr.
Eignin er seld með hefðbundnum fyrirvörum. Frekari upplýsingar veitir Finnbogi Hilmarsson, fasteignasali.
Húsið verður afhent fullbúið að utan og rúmlega fokhelt að innan, sbr ÍST byggingarstig 4, sjá nánar skilalýsingu. Afhending er áætluð í mars 2021.
Samkvæmt teikningu hússins er skipulag þess eftirfarandi: Gengið er inn á efri hæðina og er innangengt í 24,9 fm bílskúr. Gestasnyrting við hliðina á anddyri. Í opnu rými eru eldhús, stofa, borðstofa og sjónvarpshol. Úr stofu er gengið út á rúmgóðar svalir. Á neðri hæðinni eru fjögur svefnherbergi, þvottahús, geymsla og baðherbergi. Gólfhiti er í steyptur í plötu neðri hæðarinnar.
Húsið er vel staðsett í nágrenni við Urriðaholtsskóla. Fallegt útsýni yfir Vífilsstaðarhlíðina. Stutt í alla þjónustu og verslun. Gullfalleg útivistarsvæði í næsta nágrenni og nánast göngufæri á Urriðavöll og golfklubbinn Odd. Það athugist að 3D myndir eru til að gefa vísbendingar af útliti og skipulagi hússins. Samþykktar teikningar gilda.
Hönnuður hússins er Kristinn Ragnarsson arkitekt hjá KRark efh. Allar upplýsingar um hverfið má finna inn á vef: http://urridaholt.is/
Allar nánari upplýsingar, teikningar og skilalýsingu, veitir Finnbogi Hilmarsson, finnbogi@heimili.is
Skoða allar myndir