——–Laus við kaupsamning———
Fasteignamarkaðurinn ehf. sími 570-4500 kynnir til sölu glæsilega 116,4 fermetra 3ja herbergja íbúð á 2. hæð með 7,3 fermetra suður svölum í 3ja hæða glæsilegri nýbyggingu við Lund 22 í Kópavogi. 7,3 fermetra geymsla merkt 0005 í kjallara fylgir eigninni. Sér bílastæði merkt B-6 í bílageymslu fylgir íbúðinni og lyfta er í húsinu.
Eignin skiptist í: forstofu, sjónvarpshol, 2 svefnherbergi, þar af inngengt í fataherbergi úr hjónaherbergi, baðherbergi með sturtu, þvottahús, eldhús með eyju og stofu.
Lundur 22. SKILALÝSING 11.07.2020
- Frágangur innanhúss
-
- Gólfefni
Íbúðin sjálf verður afhent án gólfefna, nema á baðherbergi og þvottahúsi verða flísar. Flísar verða 30×60 cm.eða sambærilegt á gólfum á baðherbergi og þvottahúsi. Flísar á veggjum á baðherbergi verða 30×60 cm. eða sambærilegt.
-
- Veggir
Útveggir íbúðarinnar eru einangraðir að innan pússaðir og sparslaðir. Léttir innveggir eru hlaðnir úr vikur- eða gjallplötum, grófpússaðir og sandsparslaðir eða hefðbundnir gipsplötuveggir sparslaðir. Veggir eru grunnaðir og málaðir með tveimur yfirferðum af plastmálningu, gljástig 4-7 eða sambærilegt.
-
- Loft
Steypt loft eru slípuð, sandspörsluð. Loft eru grunnuð og máluð með tveimur yfirferðum af plastmálningu, gljástig 2-4 eða sambærilegt. Loft og veggir á baðherbergjum og þvottahúsum eru máluð með viðurkenndri votrýmismálningu þar sem við á. Loft efstu hæðar eru gipsklædd spörsluð.
-
- Gler
Tvöfalt hefðbundið K-gler, verksmiðjugler er í öllum gluggum. Ábyrgð framleiðanda er samkvæmt skilmálum Samverk eða viðkomandi glerframleiðanda hverji sinni.
-
- Sólbekkir
Sólbekkir frá Fanntófell eru plastlagðir með sléttum framkanti þar sem við á.
-
- Hurðir
Yfirfelld hurð EICS-30 inn í íbúðina. Innihurðir verða yfirfeldar og spónlagðar og fylgja fullfrágengnar. Hurðirnar eru frá Parka og framleiddar í Þýskalandi, eða sambærilegt.
-
- Fataskápar
Fataskápar eru í svefnherbergjum og forstofu. Innréttingar eru frá Brúnás ehf. og eru að innan úr ljósgráum plasthúðuðum spónaplötum, en sýnilegar hliðar og hurðir spónlagðar.
-
- Eldhús
Eldhúsinnrétting frá Brúnás ehf. er að innan úr ljósgráum plasthúðuðum spónaplötum, en sýnilegar hliðar og hurðir svart lakkað og eða bæsað og hvítt, með hvítum efri skápum og plastlagðri borðplötu með beinum kanti, ásamt vaski og blöndunartækjum frá Tengi. Einnig fylgir AEG spanhelluborð, ofn með blæstri, 900w örbylgjuofn ásamt gufugleypi með kolasíu, ísskápur og uppþvottavél frá Bræðrunum Ormsson ehf. Flísar vera á milli skápa í eldhúsi þar sem við á eða gler.
-
- Baðherbergi
Á baðherbergi er gólf flísalagt sem og veggir. Innréttingar eru að innan úr ljósgráum plasthúðuðum spónaplötum, en sýnilegar hliðar og hurðir spónlagðar og eða sprautulakkað hvít. Á baðherbergi er uppsettur spegill, handlaug í innréttingu, handklæðaofn, upphengt og innbyggt salerni með hæglokandi setu ásamt flísalögðum sturtubotni með sturtuhlið úr gleri. Blöndunartæki frá Tengi eru við handlaug og sturtu.
-
- Þvottahús
Í þvottahúsi er gólf flísalagt og innréttingar frá Brúnás ehf. úr ljósgráum plasthúðuðum spónaplötum með ræstivask og blöndunartæki á vegg eða borði. Niðurfall er í gólfi og tengingar fyrir þvottavél og þurrkara, gert er ráð fyrir barkalausum þurrkara.
-
- Sérgeymsla
Steypt loft, veggir og gólf í sérgeymslum eru hreinsuð og máluð. Skilveggir á milli geymslna eru með timburgrind og málaðri plötuklæðningu. Sérgeymslur eru án innréttinga með hvítmálaðri yfirfelldri hurð þar sem við á. Rafmagnstengill er í sérgeymslu.
-
- Timburverandir
Timburverandir fylgja íbúðum á jarðhæð þar sem við á. Skjólveggir staðsteyptir eða timburveggir.
Timburklæðningar í veggi og verandir á jarðhæð eru út gagnvarinni furu.
-
- Hitakerfi
Íbúðirnar eru upphitaðar með gólfhita en sameign með ofnakerfi skv. teikningum. Góflhita er stýrt með þráðlausum hitanemum á vegg rýmis. Ofnakerfi í sameign fylgir frágengið og verða hitastýrðir lokar á því.
-
- Loftræsi-, vatns- og þrifalagnir
Loftræsi-, vatns, – og þrifalagnir fylgja frágengnar skv. teikningum. Forhitari er á heitu neysluvatni.
-
- Rafmagns- og sjónvarpslagnir
Rafmangs- og sjónvarpslögn fylgir frágengin með einum mynddyrasíma í íbúð. Loftnetstenglar eru í alrými og herbergjum. Símatengill er í alrými og herbergjum.
- Frágangur sameignar
-
- Anddyri og stigahús
Steyptir innveggir geymslum eru hreinsaðir og málaðir. Sameign á hverri íbúðarhæð og stigagangur eru sandspartlaðir, grunnaðir og málaðir tveimur yfirferðum af plastmálningu. Anddyri er flísalagt með uppsettum póstkössum, íbúðartöflu og dyrabjöllu. Á stigum og pöllum á hæðum er teppi og uppset handrið. Raflögn í sameign fylgir frágengin með ljósakúplum þar sem venja er að hafa þá. Loftræsilagnir eru lagðar samkvæmt teikningum.
-
- Hurðir
Allar útihurðar fylgja frágengnar. Aðalhurð er úr áli . Innri anddyrishurð er úr áli með mótorknúinni hurðarpumpu. Hurð frá bílgeymslu gegnum brunastúku er stálhurð.
-
- Lyfta
Fólkslyfta eru af gerðinni KONE eða sambærilegt og eru tilbúnar til notkunar í stigahúsi.
-
- Lokað bílageymsluhús
Bílgeymsla er niðurgrafin að hluta með Troldtekt-plötum og/eða einangrun í lofti þar sem við á. Útveggir verða einangraðir ýmist að utan- eða innanverðu eftir því sem við á. Þeir eru ýmist pússaðir, hreinsaðir og slípaðir að innanverðu og málaðir. Hitablásarar og loftræsikerfi fylgir frágengið í samræmi við teikningar. Gólf er steypt og vélslípað án frekari meðhöndlunar en bílastæði eru merkt. Sprungur geta myndast á yfirborði gólfsins sem verða ekki meðhöndlaðar frekar. Hurð fyrir bílgeymslu fylgir frágengin með sjálfvirkum opnunarbúnaði og einni fjarstýringu á hvert stæði.
-
- Hjóla- og vagnageymsla
Steyptir innveggir í hjóla- og vagnageymslu eru hreinsaðir slípaðir og málaðir. Gólf eru slípuð og máluð.
Loft eru hreinsuð slípuð og máluð. Gipsloft er að hluta í geymslu.
-
- Sorp og sorpgeymsla
Sorpgeymsla er staðsett úti og eru veggir með múrfiltun og málaðir. Gólf er steypt og slípað.
- Frágangur utanhúss
-
- Klæðning og einangrun
Húsið er einangrað að innan og pússað. Veggir úti eru pússaðir með steiningarlími og málaðir. Einstaka fletir eru timburklæddir. Kjallaraveggir og fleira eru múraðir beint á stein eða á einagrun, og eða tjargaðir einangraðir með drendúk eftir því sem við á úti
-
- Þak
Þak er með tvöföldum eldsoðnum tjörupappa.
-
- Svalir
Svalagólf eru steypt og slípuð og eða fílteruð. Svalahandrið eru úr áli og gleri frá Ál og Gler eða sambærilegt. Útiljós og rafmagnstengill er á svölum. Svalaloft eru steypt slípuð grunnuð og máluð. Þaksvalir er með eldsoðnum tjörupappa og gagnvörðu timburklæðningu
-
- Gluggar
Gluggar eru álklæddir timburgluggar frá Berki. Opnanleg gluggafög fylgja frágengin, svo og allar úti- og svalahurðir að fullu frágengnar með þéttiköntum.
-
- Lóð
Lóð er fullfrágengin með grasþökum og gróðri samkvæmt leiðbeinandi teikningu landslagsarkitekts. Stéttar næst húsi eru hellulagðar og snjóbræðslulögn í gangstíg framan við húsið samkvæmt teikningu. Bílastæði er malbikað eftir því sem við á. Allur lóðarfrágangur við húsið getur ekki endurspeglað að fullu teikningar lóðarhönnuða né samþykktar byggingarnefndateikningar arkitekts s.s gras, gróður, palla við íbúðir og allan annan frágang. Endanlegt útlit og allur frágangur lóðarinnar sem og aðlögun að næsta götum,byggingum og lóðarmörkum verður samkvæmt ákvörðun verkefnastjóra og verksjóra Byggingarfélags Gylfa og Gunnars hverju sinni.
- Hönnuðir
Arkitektar: Guðmundur Gunnlaugsson (Archus) og Gunnar Páll Kristinsson (Rýma arkitektar).
Verkfræðihönnun: NNE
Raflagnahönnun: Umsjá
- Byggingaraðili
Byggingarfélag Gylfa og Gunnars hf., www.bygg.is
Athygli skal vakin á því að Byggingarfélag Gylfa og Gunnars áskilur sér allan rétt til að gera útlits,efnis- og tæknilegar breytingar meðan á byggingarframkvæmdum stendur.
- Afhendingartími
Íbúðir verða afhentar á tímabilinu des 2020. Sameign að utan og lóð verða afhent vorið 2021. Bílgeymsla verður afhent í des 2020.
Allar breytingar á íbúðinni sjálfri og einstaka hluta í henni að ósk kaupanda geta haft áhrif á afhendingartíma til seinkunnar.
- Til áréttingar
- Seljandi áskilur sér rétt til að láta breyta teikningum á byggingartímanum í samráði við arkitekta og hönnuði að fengnu samþykki byggingaryfirvalda sé þess þörf vegna tæknilegra útfærslna.
- Í nýjum íbúðum er mikill byggingaraki í steypuvirkinu. Þessi raki mun hverfa á einu til tveimur árum en það er þó algjörlega háð útloftun í íbúðinni. Nauðsynlegt er að fylgjast með vatnsmyndun (döggun) innan á gleri. Ef mikil bleyta safnast saman neðst á glerinu getur vatnið skemmt gluggann, gólfefni, málningu og spörslun. Því er mikilvægt að hafa gluggafögin lítillega opin til að tryggja útloftun, sérstaklega þegar tekur að kólna.
- Íbúðareigandi gæti þurft að hreinsa sigti á blöndunartækjum nokkrum sinnum eftir að flutt er inn í íbúðina og fylgjast með niðurföllum í þvottahúsi, baði og úti á svölum.
- Svalagólf er nauðsynlegt að sílanbera á ca. 2ja ára fresti ef þau eru ekki flísalögð.
- Nauðsynlegt er að sílanbera steiningu eða á ca. 2ja ára fresti.
- Nauðsynlegt er að smyrja lamir á opnanlegum fögum og svalahurðum svo þau festist ekki.
- Íbúðaeigendum er kunnugt um dælur í dælubrunnum sem þarf að fylgjast með skipulega svo og niðurföll sem þarf að hreinsa sem og öryggisdælu.
- Við afhendingu skal kaupandi skoða íbúðina ítarlega. Ef einhverjir ágallar finnast skal kaupandi, áður en hann hefur framkvæmdir í íbúðinni, afhenda fulltrúa Bygg undirritað eyðublað þar sem þessir ágallar eru taldir upp.
- Varast ber að setja plastfilmu eða merkingu á gler eða setja gardínur þétt að gleri vegna rakamyndunar og sprunguhættu.
- Aðalhurðir í stigahúsi svo og bílageymsluhurð verður að fylgjast vel með og umgangast þannig að engar þvinganir verði við umgang þeirra. Reglulegt viðhald hurðanna er nauðsynlegt.
- Íbúðarkaupendur gera sér grein fyrir að í sérgeymslum og öðrum geymslum geta verið lagnir í loftum og á veggjum sem nauðsynlegar eru vegna lagnaleiða hússins.