Kjöreign fasteignasala, Ármúla 21, Reykjavík sími 533-4040 kynnir í einkasölu Hofsvík 3, sumarhúsalóð í landi Hraunborgar í Grímsnes- og Grafningshreppi.
Lóðin er skráð 5.100 fm. að stærð og leyfi til að byggja allt að 150 fm. hús á lóðinni, fyrir er ca. 30 fm. sólpallur. Lóðin er leigulóð.
Heimæð fyrir rafmagn, og búið er að leggja fyrir heitu og köldu vatni að lóðarmörkum. Rotþró er á lóðinni og búið að útbúa 2 bílastæði á lóðinni
Á jórðinni Hraunborgum er rekið tjaldsvæði og er þar góð þjónustumiðstöð, lítill golfvöllur, minigolf og sundlaug.
Stutt er til þekktra staða á Suðurlandi, Skálholts, Þingvalla, Laugarvatns, Geysis, Gullfoss og Kersins. Stutt er í veiði, sundlaug, golfvöll, íþróttavöll og fallegar gönguleiðir.
Upplýsingar gefa sölumenn Kjöreignar í síma 533-4040 eða kjoreign@kjoreign.is