Lindin fasteignir s. 893-1319 og Þórdís Pála Reynisdóttir löggiltur fasteignasali thordis@lindinfasteignir.is kynna:
Svínaskálahlíð 7, Eskifirði.
Vandað og vel byggt einbýlishús með bílskúr og möguleika á íbúð á neðri hæð. Á efri hæð er inngangur í íbúðina. Komið er inn í flísalagða forstofu með fataskáp og hengi. Úr forstofunni er komið inn á gang og til hægri er stór og björt stofa/borðstofa með miklu útsýni. Eldhúsið er með borðkrók og er það með upprunalegri innréttingu. Við hlið eldhússins er þvottahús með dyrum út í bakgarð. Við herbergjagang eru 4 svefnherbergi. Í stærsta herberginu er stór fataskápur með innbyggðu borðplássi. Baðherbergið er rúmgott, þar er baðkar. Ekki er opið á milli hæða en hægt er að breyta því. Sér inngangur er á neðri hæðina þar sem er full lofthæð en óinnréttað rými.
Rúmgóðar svalir eru við SV hlið hússins og tegjast þær tröppunum.
Innbyggður bílskúr er á neðri hæðinni.
Kostnaður kaupanda:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi – 0,8% af heildarfasteignamati en 0.4% fyrir fólk sem er að kaupa sína fyrstu fasteign. Lögaðilar greiða 1.6% af fasteignamati.
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi, umboði o.fl. 2.000 kr. af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar – almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu 48.980 kr. m.vsk.