Nánari lýsing: Komið er upp nokkrar tröppur og inn um aðal inngang. Forstofa með hvítum skáp og vandaðar flísar á gólfi. Frá forstofu er gengið upp í risið á hægri hönd en beint af augum í gegnum forstofuhurð inná aðalhæðina.Í núverandi skipulagi er ósamþykkt sér íbúð í risinu. Allar innréttingar eru sérsmíðaðar og teiknaðar af Sigurði Halldórssyni arkitekt og Gláma Kím arkitektastofu. Innréttingar, lýsing, gólfefni, steinn á borðum í eldhúsi og flísar eru af vönduðustu gerð. 3 baðherbergi og glæsileg viðbygging sem er sérlega vel heppnuð í alla staði gefur húsinu fágað yfirbragð.
Aðalhæðin: er forstofa með skáp, hol, eldhús, stofa og borðstofa með hurð út á svalir, (þaðan er stigi niður í garð) tvö svefnherbergi þ.a. annað með fataherbergi, baðherbergi og sérlega fallegur hringstigi niður á jarðhæð.
Á jarðhæð er sér inngangur beint inn af bílaplani. Þar er þvottahús og baðherbergi með sturtu ásamt geymslu og sjónvarpsholi.
Íbúð (ósamþykkt) í risi: er um 51 fm en 65fm gólfflötur. Núna er þar eldhús og stofa í opnu rými ásamt einu rúmgóðu svefnherbergi, geymslu undir súð, stórum gólfssíðum gluggum og hurð sem möguleiki er að opna út á þaksvalir. Ekki er komið glerhandrið á svalirnar og er hurðin því lokuð af öryggisástæðum.
Sérlega glæsileg eign sem möguleiki er á að sníða að þörfum. Skráning hjá FMR er ekki í samræmi við stærð eignarinnar eftir teikningum. Hjá FMR er eignin skráð 220,7 fm. Íbúð á hæð er skráð 125,5 og íbúðarherbergi í kjallara er skráð 35,4fm. Bílskúr er skráður 24,3 og íbúðarherbergi í risi er skráð 35,5. Samtals 220,7fm.
Samkvæmt teikningu er eignin 231,6fm 154,2 fm aðalhæð og hluti kjallara ásamt geymslu innaf opnu býlskýli sem er 4.2fm svo er 50,1fm teiknuð ósamþykkt íbúð í risi,en þar er gólfflötur 65,3fm á teikningu og bílskúr 23,1fm. Ekki er starfrækt húsfélag í húsinu.
Nánari upplýsingar veita löggiltir fasteignasalar,
Elín Alfreðsdóttir sími 899-3090 eða elin@miklaborg.is
Jason Kristinn Ólafsson sími 775-1515 eða jassi@miklaborg.is
Skoða allar myndir