Nánari lýsing íbúðar 507: 3ja herbergja 144,6 fm íbúð.
Glæsileg og björt útsýnisíbúð á fimmtu hæð. Gengið er inn í andyri. Rúmgott hjónaherbergi þar sem útgengt er á svalir. Baðherbergi með flísalagðri sturtu. Gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara inni á baðherbergi. Svefnherbergi á gangi með fataskápum. Opið og bjart stofu- og eldhúsrými þar sem útgengt er á 33,3 fm þaksvalir með frábæru útsýni. Eigninni fylgir sérmerkt stæði í bílageymslu og að auki 32,6 fm bílskúr sem staðsettur er í bílageymslu. Myndir eru úr sýningaríbúðum
Heimasíða – https://alalind.is/
Skilalýsing – https://alalind.is/skilalysing/
Álalind 18 – 20 er 5 – 7 hæða bygging sem skiptist í tvö stigahús sem tengd eru saman með rúmgóðum svalagöngum sem snúa til suðurs. Sameiginlegar þaksvalir er að finna á 5. hæð í austuhluta hússins. Flestum íbúðum fylgir stæði í lokaðri bílageymslu. Fjölbreyttar stærðir íbúða í boði, allt frá 51,8 fm upp í 203,6 fm. Húsið er klætt að utan með álklæðningu. Innréttingar í eldhúsum eru ljósar að lit með dökku uppbroti. Íbúðir skilast án gólfefna að undanskildum votrýmum sem eru flísalögð með 60×60 cm flísum.
Frekari upplýsingar í skilalýsingu.
Jason Kristinn Ólafsson lögg. fasteignasali sími 775-1515 eða jassi@miklaborg.is
Barbara Bergþórsdóttir lögg. fasteignasali í síma 8320339 eða barbara@miklaborg.is
Óskar Sæmann aðst.m. fasteignasala í síma 691-2312 eða osa@miklaborg.is
Ómar Hvanndal Ólafsson hdl. og aðst.m. fasteignasala sími 832-3200 eða omar@miklaborg.is
Skoða allar myndir