Hraunbær 103A íbúð 502 Eignin er tveggja herbergja íbúð á 5. hæð (efstu) birt stærð eignar er 64,1m2. Eigninni tilheyrir geymsla stærð 9,6 m2 . Eigninni fylgir EKKI stæði í upphitaðri lokaðri bílageymslu. Lóðarhafi og verktaki er Dverghamrar ehf
Íbúð 502 Hraunbæ 103A: Sameiginlegur inngangur að íbúð. Komið er inn í forstofu með skápum sem er opin inn í holi. Úr forstofu er gengið inn í hol sem leiðir þig í allar vistaverur íbúðar. Baðherbergi flísalagt með ljósum fallegum flísum og þar er gólfhiti. Á baði er góð snyrtiaðstaða, sturta, innrétting með skápum undir handlaug og spegli fyrir ofan handlaug. Einnig er innréttingu haganlega fyrir komið á baði, með tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Hjónaherbergi með skápum. Eldhús og stofa er eitt rými sem er mjög bjart með útgengt út á glæsilegar yfirbyggðar svalir sem snúa til suð-austur.
Húsið: Húsið er hannað á grundvelli algildrar hönnunar. Í öllum íbúðum er hægt að uppfylla skilyrði um algilda hönnun með einföldum breytingum. Við hönnun húss er tekið mið af því, að lágmarka viðhald húss. Húsið er einangrað að utan, álklætt að hluta og gluggar ál-tré gluggar. Upphitaðar gangstígar að húsi.
Sjá nánari upplýsingar á heimasíðu verkefnisins hér: https://vefir.onno.is/dverghamrar/hraunbaer-103/?ref=miklaborg
Helstu kostir við frágang:
- Húsið staðsteypt og einangrað að utan / Hús klætt að utan álklæðning / timburklæðning
- Vandaðar innréttingar / Eldhústæki, frá AEG
- Blöndunartæki einnar handar / Gólfhiti á baðherbergjum
- Baðherbergi flísalögð gólf og tveir veggir / Milliveggir gerðir úr tvöföldu gifsi
- K einangrunargler / Mögulegt að koma fyrir rafbílahleðslu í bílastæðahúsi / Mynddyrasími
ATH: Kaupandi greiðir skipulagsgjald þegar það verður lagt á 0.3% af brunabótarmati
Glæsileg staðsett hús í rótgrónu hverfi, þar sem húsið stendur hátt, verður einstakt útsýni úr flestum íbúðunum. Mikil uppbygging er í Árbænum þar sem miðbæjarkjarninn er að færast ofar í borginni. Góð aðstaða til útivistar. Stutt í alla þjónustu, íþróttamannvirki, verslun og stofnbraut.
Allar nánari upplýsingar um eignina veita Jórunn löggiltur fasteignasali í síma 845-8958 eða jorunn@miklaborg.is,
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% fyrstu kaup / 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila 2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali. 3. Lántökugjald lánastofnunar eru mismunandi eftir lánastofnunum frá kr 30 – 81 þúsund. 4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Skoða allar myndir