Fasteignamarkaðurinn ehf. s. 570-4500 kynnir til sölu bjart, fallegt og vel skipulagt 233,5 fermetra einbýlishús á einni hæð á frábærum stað neðst við opið útivistarsvæði í Fossvoginum.
Einstakt tækifæri til að eignast einbýlishús á einni hæð á mjög eftirsóttum stað í Fossvoginum.
Húsið er byggt með steyptu pappalögðu flötu þaki en fyrir um 20 árum síðan var sett á það uppstólað bárujárnsklætt þak með þakkanti.
Lýsing eignar:
Forstofa, flísalögð og með fataskápum.
Gestasnyrting, flísalagt gólf og veggir, vegghengt wc.
Barnaherbergi I, innaf forstofu er stórt, parketlagt og með fataskápum.
Hol, parketlagt.
Stofur, eru stórar, bjartar, samliggjandi og parketlagðar.
Sjónvarpsstofa, opin við stofur, parketlögð og hægt að breyta í svefnherbergi.
Eldhús, stórt, flísalagt og með góðri borðaðstöðu. Fallegar eikarinnréttingar með graníti á borðum og á milli skápa og innbyggðri uppþvottavél.
Búr, innaf eldhúsi.
Þvottaherbergi, flísalagt og með innréttingum með vinnuborði og vaski og handklæðaofni. Gluggar og útgengi á lóð til vesturs.
Svefngangur, parketlagður.
Barnaherbergi II, parketlagt.
Hjónaherbergi, stórt, parketlagt og með fataskápum. Úr hjónaherbergi er útgengi á lóð til suðurs.
Baðherbergi, með glugga, flísalagt gólf og veggir, baðkar, vegghengt wc, innréttingar og flísalögð sturta.
Bílskúr, er með gluggum, göngudyrum, mótor á bílskúrshurð og rennandi heitu og köldu vatni.
Lóðin sem liggur alveg niður við opna svæðið í Fossvoginum er fullfrágengin með stórum tyrfðum flötum, trjágróðri , hellulagðri stétt og steyptri innkeyrslu.
Staðsetning eignarinnar er virkilega góð neðst í götu við opið svæði þaðan sem stutt er í skóla, leikskóla, íþróttasvæði Víkings, fallegt útivistarsvæði og fleira.
Fyrir liggur að byggingarreitur á lóðinni er ekki fullnýttur og því mætti stækka eignina þó nokkuð.
Ekki verður haldið opið hús en bóka má einkaskoðun hjá Guðmundi Th. Jónssyni, löggiltum fasteignasala, sem jafnframt veitir nánari upplýsingar um eignina í síma 570-4500 eða í netfanginu gtj@fastmark.is
Skoða allar myndir