Íbúð 601 Hraunbæ 103B: Glæsileg endaíbúð á sjöttu hæð. Komið er inn í sameiginlegan inngang að íbúð. Forstofa opin inn í hol sem leiðir þig í allar vistaverur íbúðar. Í holi eru skápar. Baðherbergið er flísalagt og með góðri snyrtiaðstöðu, sturta, innrétting með skápum undir handlaug og spegli fyrir ofan handlaug. Einnig er tengi fyrir þvottavél og þurrkara á baði. Gott aukaherbergi með fataskápum. Hjónaherbergið er rúmgott og bjart og með skápum ásamt auka baðherbergi. Baðherbergið innaf hjónaherbergi er góð snyrtiaðstaða, sturta, upphengt klósett og handlaug með spegli fyrir ofan. Eldhús og stofa er eitt rými sem er mjög bjart og stórar stofur, þaðan er útgengt út á rúmgóðar svalir. Eyja í eldhúsi klædd kvars steini. Geymsla fylgir eigninni merkt á teikningu 0028 að stærð 11,6 fm. Einnig fylgir stæði í upphitaðri lokaðri bílageymslu merkt nr. B-18.
Nánari lýsing á eigninni: Komið er inn um sameiginlegan inngang. Í forstofu eru góðir fataskápar. Hjónaherbergið er hjónasvíta, rúmgóð með góðum skápum og baðherbergi með glugga. Aukaherbergið er einnig rúmgott, þar eru fataskápar. Baðherbergis gólf og veggir eru flísalög hluta (2.veggir). Glæsilegt eldhús með eyju með útgengt út á útsýnissvalir. Stofur eru með panórama útsýni gluggar í þrjár áttir. Einstök aðstaða.
Húsið: Húsið er hannað á grundvelli algildrar hönnunar. Í öllum íbúðum er hægt að uppfylla skilyrði um algilda hönnun með einföldum breytingum. Við hönnun húss er tekið mið af því, að lágmarka viðhald húss. Húsið er einangrað að utan, álklætt að hluta og gluggar ál-tré gluggar. Upphitaðar gangstígar að húsi. Lóðarhafi og verktaki er Dverghamrar ehf
Helstu kostir við frágang:
- Húsið staðsteypt og einangrað að utan
- Hús klætt að utan með vandaðri álklæðningu að hluta
- Vandaðar innréttingar með steypti borðplötu
- Eldhústæki, frá AEG
- Blöndunartæki einnar handar
- Gólfhiti á baðherbergjunum báðum
- Baðherbergi flísalögð, gólf og tveir veggir
- Flestir milliveggir gerðir úr tvöföldu gifsi
- K einangrunargler
- Rafhleðslubox fyrir rafbílahleðslu í bílastæðahúsi
- Mynddyrasími
Glæsileg staðsett hús í rótgrónu hverfi, þar sem húsið stendur hátt, verður einstakt útsýni úr flestum íbúðunum. Mikil uppbygging er í Árbænum þar sem miðbæjarkjarninn er að færast ofar í borginni. Góð aðstaða til útivistar. Stutt í alla þjónustu, íþróttamannvirki, verslun og stofnbraut.
Allar nánari upplýsingar um eignina veita Jórunn löggiltur fasteignasali í síma 845-8958 eða jorunn@miklaborg.is,
Skoða allar myndir