Gott hús í gamla bænum á Blönduósi.
Um er að ræða einbýlishúsið að Aðalgötu 3a. Þetta er 133 fm hús á tveimur hæðum. Húsið var byggt 1919 en hefur fengið ýmiskonar viðhald og endurbætur.
Á efri hæð er eldhús, stofa, eitt stórt herbergi og annað lítið. Hægt væri að setja þar snyrtingu ef vildi. Eldhúsinnrétting er nýleg. Plastparkett er á gólfi stofu.
Á neðri hæð eru 2 svefnherbergi og snyrting sem þarfnast endurbóta. Þar er einnig nokkuð stórt rými, sem mætti gera að herbergi en er nú notað sem geymsla. Auk þessa eru geymslur á hæðinni. Þar er einnig aðstaða fyrir þvottavél.
Upplýsingar veita Stefán Haraldsson s 440 6030 eða 894 1669 stefan@domus.is eða Stefán Ólafsson hrl. löggiltur fasteignasali s 440 7972 stefano@domus.is
Skoða allar myndir